Guðni Þór Gunnarsson hefur starfað við endurskoðun og ráðgjöf frá árinu 2005 hjá eigin fyrirtæki, GÞG endurskoðun og ráðgjöf. Hann starfaði áður á hjá Ernst & Young og Deloitte. Guðni hlaut löggildingu í endurskoðun 2003.
Hjalti Ragnar Eiríksson hefur starfað við endurskoðun og ráðgjöf frá árinu 2000 hjá Deloitte og var yfirmaður uppgjörssviðs. Hjalti hlaut löggildingu í endurskoðun 2010. Hjalti hóf störf hjá félaginu nú í nóvember 2020
Ómar Kristjánsson hefur starfað sem endurskoðandi á eigin endurskoðunarstofu Endurskoðun Ómars Kristjánssonar í Hafnarfirði frá árinu 1982 en hann hlaut löggildingu í endurskoðun sama ár. Auk þess var hann í stjórn FLE á árunum 2002-2004 og hefur setið í menntunarnefnd FLE frá árinu 2008. Ómar er stjórnarmaður í Íslenskum endurskoðendum.