Um okkur

Á árinu 2008 voru samþykkt ný lög um endurskoðendur. Með lögunum voru innleiddir alþjóðlegir endurskoðunarstaðlar hér á landi sem gera auknar kröfur til endurskoðunar reikningsskila heldur en áður hefur tíðkast auk aukinna krafna um gæðaeftirlit innan fagstéttarinnar.

Til að mæta þessum auknu kröfum ákváðum við nokkrir endurskoðendur að sameina krafta okkar undir nafni Íslenskra endurskoðenda, ráðgjöf. Með stofnun félagsins viljum við auka gæði endurskoðunar okkar og tryggja að þær alþjóðlegu kröfur sem til okkar eru gerðar séu uppfylltar.

Félagið starfar í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ og starfar félagið á sviði endurskoðunar reikningsskila, ráðgjöf, uppgjörs og bókhaldsþjónustu.

Eigendur félagsins eru Árni Ólafur Hjartarson, Drangakór 1, Kópavogi, Guðni Þór Gunnarsson, Tunguvegi 5, Reykjanesbæ, Gunnar Þórarinsson, Vallarási 2, Reykjanesbæ, Hjalti Ragnar Eiríksson, Hálsaþingi 16, Kópavogi og Ómar Kristjánsson, Háabergi 7, Hafnarfirði.